Sunnudagur 11. október 2026

Það getur enginn kvartað undan svona aflabrögðum

Bergey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum á síðasta vetrardag og var aflinn að mestu ýsa sem fékkst á Öræfagrunni. Nú er Bergey að reyna við karfa suður af Vestmannaeyjum og gengur þokkalega. Gerir Jón Valgeirsson skipstjóri ráð fyrir að komið verði til löndunar í Eyjum á mánudag.

Vestmannaey VE kom með góðan afla til Neskaupstaðar á sumardaginn fyrsta og hitti tíðindamaður Síldarvinnslunnar, Egil Guðna Guðnason skipstjóra kátan og hressan á hafnarbakkanum að löndun lokinni. „Við vorum að landa fullfermi eða rúmlega það. Þetta voru 237 kör eða 85-90 tonn og aflinn var þorskur og ýsa. Ýsuna fengum við á Öræfagrunni og þorskinn á Breiðdalsgrunni. Þetta var fínasta veiði. Túrinn tók um það bil þrjá og hálfan sólarhring; við veiddum ýsuna á tæpum sólarhring og þorskinn á um það bil sólarhring og síðan vorum við í einn og hálfan sólarhring á siglingu.

Það getur enginn kvartað undan svona aflabrögðum

Vertíðin er búin að vera afar góð en auðvitað er ávallt spurningin hvað má veiða hverju sinni. Stundum geta menn ekki sótt í það sem auðveldast er að taka en kvóti og markaðsaðstæður ráða því auðvitað hvað veitt er hverju sinni. Nú munum við halda til Eyja og hefja veiðar þar enda fæðingarorlofi þorskins, hinu svonefnda hrygningarstoppi, lokið á vestursvæðinu. Það verður skipt um áhöfn að hluta í Eyjum og síðan haldið á miðin. Það þýðir ekkert að slá slöku við,“ segir Egill Guðni.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search