23.11.2020
Það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr Viltu hafa áhrif 2021 en það verður tilkynnt 3. desember næst komandi hverjir hljóta styrk.
Fyrr á þessu ári auglýsti Vestmannaeyjabær eftir ábendingum, tillögum og styrkumsóknum undir heitinu Viltu hafa áhrif 2021?
Markmiðið með þessu er að stuðla að auknu íbúalýðræði í Vestmannaeyjum með því að gefa fólki, fyrirtækjum og félagasamtökum tækifæri á að hafa áhrif á bæinn sinn í gegnum fjárhagsáætlun næsta árs.
Fjölmargar góðar ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengdrar bókaútgáfu, leiktækja á opnum svæðum og göngustíga.
Bæjarráð hittist á vinnufundi 16. nóvember sl. og tók ákvörðun um hverjir hljóta styrki í ár. Í fjárhagsáætlun ársins 2021 er gert ráð fyrir 11 m.kr. í Viltu hafa áhrif?. Alls bárust í ár 26 styrkumsóknir sem og fjöldi ábendinga um hvað betur má fara í Vestmannaeyjum.
Á fundi bæjarráð í síðustu viku þakkar bæjarráð bæjarbúum fyrir fjölbreyttar umsóknir og ábendingar.
Það er ljóst að bæjarbúar eru hugmyndaríkir um hvernig gera megi góðan bæ enn betri.
Upplýst verður um hvaða aðilar hlutu styrk við síðari umræðu um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn 3. desember nk.
Styrkirnir verða svo formlega afhentir þriðjudaginn 8. desember nk.