Miðvikudagur 6. desember 2023

2,5 milljónir í verðlaun í stærsta hakkaþoni sem haldið hefur verið á Íslandi – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mun afhenda verðlaun klukkan 12.00 í dag

29.05.2020

2,5 milljónir í verðlaun í stærsta hakkaþoni sem haldið hefur verið á Íslandi

Nýsköpunarkeppninni Hack the Crisis Iceland lýkur á hádegi í dag. Þetta er stærsta stafræna hakkaþon sem haldið hefur verið hér á landi með nærri tvöhundruð þátttakendum víða að úr heiminum.

Hakkaþonið (lausnarmótið) hófst 22. maí og stóð yfir alla helgina í formi beinna vefútsendinga og fjarfunda. Alls bárust yfir 64 lausnir, sem gera samtals 128 lausnir,  því teymin máttu skila lausninni í tvo flokka. Það var framar björtustu vonum og þurftu skipuleggjendur að framlengja dómarastörf um einn dag til að velja tólf bestu verkefnin til kynningar í fimm flokkum.

  • Nýskapandi lausnir í heilbrigðisþjónustu
  • Nýskapandi lausnir í félags- og velferðarmálum
  • Nýskapandi lausnir í menntamálum
  • Nýskapandi lausnir í atvinnumálum
  • Opinn flokkur

Yfir fimmtíu mentorar úr viðskiptalífinu gáfu vinnu sína til að leiðbeina teymum. Á annan tug dómara í öllum flokkum hlustuðu svo á kynningar síðustu daga.

Keppendur voru hvaðanæva að úr heiminum og voru sum keppnisteymanna samsett af fólki í mismunandi heimsálfum. Þátttakendur utan Íslands voru m.a. frá Englandi, Bandaríkjunum, Kína, Brasilíu, Danmörku, Egyptalandi, Mexíkó og Kólumbíu.

Skipuleggjendur voru Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Reboothack og Fjármálaráðuneytið. Þeir vilja þakka hinum fjölmörgu þátttakendum fyrir frábærar lausnir. Einnig er þeim sem fluttu fyrirlestra á meðan keppninni stóð, mentorum og dómurum þakkað fyrir sitt framlag.

Verðlaunin í Hack the Crisis Iceland eru gefin af Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Heilbrigðisráðuneyti, Fjármálaráðuneyti, Reykjavíkurborg,  Félagsmálaráðuneyti, Menntamálaráðuneyti, Island.is, CCP, Samabandi Íslenskra sveitafélaga, Viðskiptaráði Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Úrslit verða tilkynnt í dag í beinu streymi frá Stúdíó Sýrlandi og hefst verðlaunaafhendingin klukkan 12.00. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mun vera með opnunarræðu og afhenda verðlaun. Streymt verður beint frá Facebooksíðu viðburðarins.

Þau teymi sem sigra í hverjum flokki fá 500.000 kr. í verðlaunafé, Design thinking hraðal og aðstöðu á frumkvöðlasetri þar sem sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Reykjavíkurborgar annast fræðslu, stuðning og eftirfylgni.  

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is