Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti í dag 22 verkefni sem fá úthlutun á þessu ári úr sjóði vegna styrkja til verkefna sem stuðla að eflingu hringrásarhagkerfis á Íslandi. Hæstu styrkir sem veittir eru til einstakra verkefna eru 20 milljónir króna.
Verkefnin eru af margvíslegum toga, fjölbreytt og til marks um mikinn áhuga á hringrásarhagkerfinu um allt land. Heildarstyrkupphæð er 230 milljónir króna, þar af eru 141 milljónir veittar vegna nýsköpunarverkefna og 89 milljónir vegna annarra verkefna.
Markmið með styrkveitingunum er að:
a) Efla úrgangsforvarnir á Íslandi, s.s. til að draga úr myndun úrgangs.
b) Bæta flokkun úrgangs hér á landi.
c) Efla tækifæri til endurvinnslu úrgangs sem næst upprunastað.
d) Stuðla að aukinni endurvinnslu og annarri endurnýtingu úrgangs sem fellur til hér á landi.
e) Efla tækifæri til nýsköpunar og þróunar á búnaði sem dregur úr magni úrgangs eða auðveldar flokkun, endurvinnslu og aðra endurnýtingu úrgangs.
„Innleiðing hringrásarhagkerfis er mikilvægur liður í að Ísland nái markmiðum sínum í loftslagsmálum. Það er því ánægjulegt og veitir tilefni til bjartsýni að skynja hversu mikill áhugi er á þessum málaflokki og verður áhugavert að fylgjast með framþróun þeirra verkefna sem hér hljóta styrk,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Styrkirnir voru auglýstir í mars sl. og bárust ráðuneytinu alls 95 umsóknir og var heildarupphæð umsókna 1.250 milljónir króna. Matshópur lagði mat á allar umsóknir og gerði í kjölfarið tillögur til ráðherra um veitingu styrkja.
Eftirtalin verkefni hlutu styrk:
- Atmonia – Framleiðsla á nítrati úr hliðarafurðum verksmiðjuferla – 7.000.000 kr
- EFLA – Hringrásarveggur – 12.000.000 kr
- EFLA – Auðlindahringrás í rekstri – 8.000.000 kr
- Gefn – Græn efnavara úr úrgangi og útblæstri – 20.000.000 kr
- Gerosion – Notkun plastúrgangs í stað kola í kísilmálms- og málmblendiframleiðslu – 11.200.000 kr
- Grænni byggð – CIRCON: circular economy in construction – 6.700.000 kr
- IÐA – Endurnýting byggingarefna á Íslandi – 20.000.000 kr
- Jarðgerðarfélagið – Bokashi gerjun fyrir sveitarfélö – 12.500.000 kr
- Landeldi – Lífrænn áburður úr laxeldi – 20.000.000 kr
- Matís – Lífkol úr landeldi – 2.000.000 kr
- Matís – Örverur til auðgunar fiskeldisseyru – 9.500.000 kr
- Orkugerðin – Blöndun kjötmjöls og mykju við áburðardreifingu – 12.000.000 kr
- Plastplan – Samþætting plastendurvinnslu og afurðasköpunar – 8.500.000 kr
- Primex – Heilsubót úr hliðarstraumum kítínvinnslu – 9.400.000 kr
- RVK Tool Library – Hringrásarsafn – 10.000.000 kr
- Sláturhús Vesturlands – Verðmætasköpun með minnkun sláturúrgangs – 7.000.000 kr
- SORPA –Matvæli í umbúðum móttaka og vinnsla -20.000.000 kr
- Spjarasafnið – SPJARA þjónustu- og hönnunarþróun – 10.000.000 kr
- Úrvinnslan – Endurvinnsla á sláturúrgangi – 20.000.000 kr
- Vistorka –Brauðmyljarinn – 1.400.000 kr
- Vistorka – Söfnunarkerfi fyrir notaða matarolíu og fitu – 2.000.000 kr
- Vistorka – Leifur Arnar á landsvísu -800.000 kr
Alls 230.000.000 kr

