Föstudagur 11. september 2026

22 nemendur útskrifuðust frá FÍV í dag

Kæru útskriftarnemar, innilega til hamingju með daginn. Þetta er ykkar dagur í dag, njótið hans því þið eigið það skilið. Þið hafið lagt hart að ykkur og staðið ykkur
frábærlega. Það sést ekki síst á skírteinum ykkar og meðaleinkunnum. Nú er komið að leiðarlokum og nýr kafli að hefjast. Svona hefst ræða Thelma Björk Gísladóttur aðstoðarskólameistara og staðgengils skólameistara.

Kveðja frá útskriftarnemum fluttu þær Guðbjörg Sól Sindradóttir, Helena Jónsdóttir og Þóra Björg Stefánsdóttir:

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er eins og lítið samfélag þar sem flest allir þekkjast. Innan veggja þessa skóla höfum við þroskast, lært og notið samveru hvers annars. Það sem FÍV bíður upp á, ólíkt mörgum öðrum skólum, eru tækifærin til að rækta enn frekari tengsl og vináttu á sama tíma og við sækjum menntun.

Vinátta er ómetanleg og erum við einstaklega þakklátar fyrir þessi þrjú ár.  Á framhaldsskólaaldrinum breytist margt í lífi hverrar manneskju, í fyrsta sinn ber maður sjálfur alla ábyrgð á eigin námi, í fyrsta sinn getur maður mætt á bíl í skólann, því fylgdi þó pínu hræðsla á að bíllinn yrði hurðaður á bílastæðinu, nemendur fara á fyrsta busaballið, sem var reyndar aldrei haldið fyrir okkur, þið megið giska hvers vegna.

Framhaldsskólagangan okkar byrjaði með takmörkunum og eftir nokkrar vikur var alfarið farið í fjarkennslu. Því tóku nemendur misalvarlega. Í íslensku var kveikt á myndavélinni og passað upp á að slökkt væri á míkrafóninum meðan tími var í gangi. Svo voru tímar hjá Einari Fidda aðeins öðruvísi en þeir náðu yfirleitt ekki yfir tíu mínútur sem gaf nemendum kost á að leggja sig aðeins fyrir næsta tíma. Sumir nemendur voru djarfari en aðrir og nýttu tækifærið í fjarkennslunni til að sýna afrakstur heimaæfinganna og mættu berir að ofan í mynd. En sem betur fer varaði þetta ástand aðeins í eina önn og hinar annirnar fengum við aðeins hefðbundnari kennslu, þó með takmörkunum og grímuskyldu inn á milli.  Kennararnir stóðu fyrir sínu og héldu upp á ýmsar hefðir. Til að mynda umbreyttist skólinn heldur betur þegar Hrekkjavakan gekk í garð. Þá náðu Tinna og Margrét örugglega að bregða hverjum einasta nemanda. Einnig var dönsk hátíð einu sinni í nesti þar sem Einar Fidda fór á kostum og flutti lög eftir Kim Larsen. Núna förum við líklega öll í sitthvora áttina og verður mjög spennandi að sjá hvað hver og einn tekur sér fyrir hendur.

Við erum ábyggilega öll sek um að hafa fundist skólinn á tímabilum leiðinlegur, metnaðurinn hefur verið af skornum skammti og við beðið óþolinmóð eftir þessum degi. Samt er einhvern veginn svo sárt að þetta sé búið og nú sé tími til að kveðja þennan skóla. En við tökum það sem við höfum lært, hvort sem það er úr bókunum eða um lífið sjálft og mætum verkefnunum sem bíða okkar.

Að lokum langar okkur að segja: Dagurinn er í dag, njótum lífsins og til hamingju við.

Sigríður Kristmannsdóttir ávarpar nemendur fyrir hönd ÍBV – veitir barmmerki félagsins þeim sem klárað hafa 4.annir í Akademíunni:
Breki Óðinsson
Richard Óskar Hlynsson
Sunnar Einarsdóttir
Thelma Sól Óðinsdóttir
——————————————–
Elísa Elíasdóttir, 3.annir
Emelia Ögn Bjarnadóttir 1.önn
Helena Jónsdóttir 3.annir
Þóra Björg Stefánsdóttir 2.annir

Orðið
Geir Jón Þórisson með ávarp til sjúkraliða fyrir hönd Orðsins.

Sjúkraliðafélag Vestmannaeyja
Harpa Steinarsdóttir Oberman og Sigurlaug Margrét Sigmarsdóttir fyrir hönd Sjúkraliðafélags Vestmannaeyja
Sunna M. Tórshamar Georgsdóttir
Þórdís Gyða Magnúsdóttir

Viðurkenningar (GF les upp / TBG afhentir)

Danska sendiráðið – veitir viðurkenningu fyrir mjög góðan árangur í dönsku
Þóra Björg Stefánsdóttir

Skólinn veitir viðurkenningu fyrir mjög góðan árangur í spænsku
Katrín Bára Elíasdóttir

Skólinn veitir viðurkenningu fyrir mjög góðan heildarárangur í félagsvísindagreinum á stúdentsprófi
Elísa Elíasdóttir

Drífandi stéttarfélag veitir verðlaun fyrir félagsstörf á vegum skólans. Öll starfað í 4 annir eða meira.
Breki Þór Óðinsson
Guðbjörg Sól Sindradóttir
Sunna Einarsdóttir

Skólinn veitir verðlaun fyrir mjög góðan árangur í íslensku á stúdentsprófi
Helena Jónsdóttir

Stærðfræðifélag Íslands veitir viðurkenningu fyrir framúrskarandi heildarárangur á stúdentsprófi
Þóra Björg Stefánsdóttir

Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi og eftirtektarverða þátttöku í íþróttum hlýtur
Elísa Elíasdóttir

Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík eru veitt fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi
Þóra Björg Stefánsdóttir

Skólinn veitir viðurkenning fyrir mjög góðan heildarárangur á stúdentsprófi
Birkir Freyr Ólafsson 8,7
Elísa Elíasdóttir 8,7

Skólinn veitir viðurkenning fyrir frábæran heildarárangur á útskriftarprófi
Þóra Björg Stefánsdóttir með 9,2 í meðaleinkunn

22 nemendur af fjórum mismunandi brautum útskrifuðust í dag.

Þau eru:
Alexander Júlíusson – Stúdentsbraut-náttúruvísindalínu
Amelía Dís Einarsdóttir – Stúdentsbraut-félagsvísindalínu
Arna Sirrý Helgadóttir – Starfsbraut
Birkir Freyr Ólafsson – Vélstjórn B stig
Breki Þór Óðinsson – Stúdentsbraut-félagsvísindalínu
Elísa Elíasdóttir – Stúdentsbraut-félagsvísindalínu
Emelía Ögn Bjarnadóttir – Stúdentsbraut-félagsvísindalínu
Emilía Birkis Huginsdóttir – Stúdentsbraut-náttúruvísindalínu
Guðbjörg Sól Sindradóttir -Stúdentsbraut-félagsvísindalínu
Helena Jónsdóttir – Stúdentsbraut-náttúruvísindalínu
Ingunn Anna Jónsdóttir -Stúdentsbraut-náttúruvísindalínu
Katrín Bára Elíasdóttir – Stúdentsbraut – Opinni línu
Kristbjörg U. Friðbergsdóttir – Stúdentsbraut-félagsvísindalínu
María Fönn Frostadóttir – Stúdentsbraut-náttúruvísindalínu
Ragnheiður Rós Gunnarsdóttir -Stúdentsbraut-náttúruvísindalínu
Richard Óskar Hlynsson -Stúdentsbraut – Opinni línu
Sunna Einarsdóttir – Stúdentsbraut-félagsvísindalínu
Sunna M. Tórshamar Georgsdóttir – Sjúkraliðabraut
Súsanna Sif Sigfúsdóttir – Stúdentsbraut-náttúruvísindalínu
Thelma Sól Óðinsdóttir – Stúdentsbraut-félagsvísindalínu
Þóra Björg Stefánsdóttir – Stúdentsbraut-náttúruvísindalínu
Þórdís Gyða Magnúsdóttir – Sjúkraliðabraut

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search