1592 hafa látist í umferðinni hér á landi

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa 21. nóvember

Fjölmargar minningarathafnir um land allt í beinni vefútsendingu

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 21. nóvember. Í ár verður kastljósinu meðal annars beint að afleiðingum þess ef öryggisbelti eru ekki notuð. Táknrænar minningarstundir verða haldnar hringinn í kringum landið af þessu tilefni. Dagskrá viðburða er á vefnum minningardagur.is.

Minningarathöfn verður haldin við Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð kl. 14:00. Forseti Íslands og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra verða viðstaddir og flytja ávörp. Við þetta tækifæri munu forseti og ráðherra, ásamt fulltrúum viðbragðsaðila, kveikja á kertum til minningar um fórnarlömb umferðarslysa. Boðuð verður einnar mínútu þögn sem landsmenn eru hvattir til að taka þátt í. Vegna faraldursins verður streymt frá athöfninni á vef minningardagsins og á Facebook og er fólk hvatt til að njóta þess og sýna viðeigandi hluttekningu.

  • Kveikt verður á kertum við Kirkjugarðshliðið hér í Vestmannaeyjum

    Kveikt verður á kertum við Kirkjugarðshliðið kl. 19 á sunnudaginn 21 nóvember til minningar um þá sem hafa látist hafa í umferðaslysum. Þeir sem vilja geta komið og kveikt á kertum. Einnig viljum við biðja fólk um að kveikja á útikertum heima hjá sér. Bara að passa upp á 1 metra regluna.
    Stjórn Eykyndils í Verstmannaeyjum

Sautján minningarviðburðir eru skipulagðir um land allt í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörg og verða flestir þeirra í beinu vefstreymi. Fólk er hvatt til að taka þátt með því að fylgjast með í gegnum streymi og kveikja á kertum til minningar um fólk sem látist hefur eða slasast alvarlega í umferðinni.

Einkennislag dagsins er lag KK, When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum sem eru með lifandi, beina útsendingu, á minningardaginn kl. 14:00.

Alþjóðlegur minningardagur

Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Þá er rík hefð fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum, sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður, þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf.

Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 3.600 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum.

Frá því að fyrsta banaslysið var skráð hér á landi 25. ágúst 1915 hafa 1592 látist í umferðinni á Íslandi (til og með 16. nóvember 2021). Enn fleiri slasast alvarlega, takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum.

Það sem af er þessu ári hafa sjö einstaklingar látið lífið í umferðinni hér á landi. Allt árið 2020 létust sjö einstaklingar í umferðinni en árið 2019 sex manns. Alls liðu 258 dagar án nokkurs banaslyss á árinu og er það lengsti tími frá því að skráningar hófust 1966. Að meðaltali hafa undanfarin tíu ár 12 manns látist í umferðinni á hverju ári. Tíu ár þar á undan þ.e. frá 2001 til og með 2010 létust að meðaltali 20 manns á ári í umferðinni hér á landi.

Segja má að allt samfélagið deili með sér alvarlegum afleiðingum umferðarslysa. Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni. Það er því til mikils að vinna að koma í veg fyrir slysin og megi þessi dagur efla vitund okkar fyrir því og ábyrgð.

  • Dagskrá allra viðburða og nánari upplýsingar á minningardagur.is
  • Hlekkur á beint streymi frá minningarathöfn í Skógarhlíð í Reykjavík

Að baki framkvæmd minningardagsins hér á landi standa: Landsbjörg, Lögreglan, samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið, Samgöngustofa, Sjálfsbjörg og Vegagerðin.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is