Alls hafa verið skráðar 1585 pysjur hjá lundaeftirlitinu inn á lundi.is. Það var fjölmenni á pysjuveiðum um helgina, viljum við benda foreldrum á að börn sem eru svartklædd og ekki með endurskin sjást mjög illa, eins og jú þið ættuð að vita.. en það var mikið um að krakkar væru mjög illa sjáanleg á röltinu um götur bæjarins.
Hér eru svo myndir frá ljósmyndara Tíguls Adda London á einum af sleppi stöðum pysjanna út á Hamri.




















































