Listaverk dagsins er eitt af hinum fögru sköpunarverkum Drottins í kringum Vestmannaeyjar þar sem sjálf Elliðaey blasir við þegar dagtalið er opnað.
Málverkið er annað af tveimur sem safnið á eftir Benno Georg Ægisson
Benno sem réttu nafni heitir Benno Jiri Juza Ægisson, er fæddur í Prag 1945 og fluttist til Vestmannaeyja 1969. Hann hefur á sínum langa ferli verið ótrúlega afkastamikill við að sýna Eyjabúum það besta sem myndlistin hefur uppá að bjóða með því að standa fyrir glæsilegum sýningum sem margir Vestmannaeyingar muna eftir sem og sýnt eigin myndir ýmist sjálfur eða í samstarfi við aðra. Það er talsvert síðan safnið dró fram handarverk Benno.
Nú er glugginn opinn til Benno með þakklæti fyrir áralangt eljuverk hans í þágu kynningar á undraveröld myndlistarinnar.