Mánudagur 16. nóvember 2026

14 í einangrun og 30 í sóttkví í Vestmannaeyjum

Tilkynning frá Aðgerðastjórn í Vestmannaeyjum 3. ágúst 2021. Covid-19

Í dag, þriðjudaginn 3. ágúst, eru fjórtán einstaklingar í einangrun í Vestmannaeyjum vegna Covid-19 og þrjátíu í sóttkví. Tólf þeirra sem nú eru í einangrun voru í sóttkví við greiningu.

Áfram hvetjum við alla til að gæta sérlega vel að einstaklingsbundnum smitvörnum og almennum sóttvörnum, virða eins metra regluna, spritta hendur og nota andlitsgrímu. Þetta á við um alla einstaklinga hvort sem þeir hafa fengið bólusetningu eða ekki.

Allir sem finna fyrir minnstu flensueinkennum eru hvattir til að fara rakleitt í skimun og halda sig til hlés þar til niðurstaða úr skimun liggur fyrir. Á HSU í Vestmannaeyjum, Sólhlíð 10, eru tekin sýni alla virka daga kl. 13:00-13:15. Best er að skrá sig í sýnatöku gegnum vefsíðu Heilsuveru.is, en einnig má hafa samband við heilsugæslu (432 2500).

Mæting í skimun er við inngang á 1. hæð, aðkoma frá Helgafellsbraut. ATH. Raðir geta myndast utan dyra á álagspunktum í sýnatöku og er fólk hvatt til að klæða sig eftir veðri.

Allir sem mæta í sýnatöku þurfa að nota andlitsgrímu.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search