Fimmtudagur 8. október 2026

12.000 manns komið í land í sumar

Hann hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum íbúa Vestmannaeyja, allur sá fjöldi Eyjamanna sem lagt hefur leið sína til Eyja í sumar. Varla hefur liðið sá dagur að ekki er eitt slíkt við bryggju.

  Í samtali við Tígul sagði Dóra Björk Gunnarsdóttir, hafnarstjóri Vestmannaeyjahafnar, þetta töluvert fleiri skip en í fyrra þegar skipin voru samtals um fjörutíu. „Það sem af er ári hafa komið rúmlega fimmtíu skip til okkar og enn er von á einum tuttugu,“ sagði Dóra Björk þegar Tígull náði tali á henni í síðustu viku. 

Skip þessi eru af misjafnri stærð eins og gefur að skilja og þau stærstu hafa þurft að liggja utan við Heimaey eða í Klettsvík þegar aðstæður leyfa, þar sem þau hafa ekki getað lagst að bryggju í Vestmannaeyjahöfn.

Nýverið var hinsvegar samþykkt í framkvæmdar- og hafnarráði að stytta Hörgeyrargarð um allt að 90 metra. Með þessu á að vera hægt að taka á móti allt að 180 metra löngum og 30 metra breiðum skipum. Hingað til hefur stærstu skipunum sem lagst geta við bryggju hér, verði snúið í Klettsvík og bakkað inn til hafnar. Þrengsli við Hörgaeyrargarðinn hafa valdið vandræðum í slíkri aðgerð þar sem lóðsinn hafði ekki pláss til að athafna sig. Stytting garðsins gæfi nægilega breiða innsiglingarrennu til að þetta yrði síður vandamál. 

 Það má því búast við því að skemmtiferðaskipunum fjölgi enn meir með þessari framkvæmd.

Þessum fjölda skipa fylgir eðli málsins samkvæmt óragrúi fólks. Sem fylgir svo mikil innspýting í verslun og þjónustu í Eyjum.  „Það má reikna til að tæplega 12.000  farþegar hafi komið í land hjá okkur það sem af er sumri,“ sagði Dóra Björk aðspurð um fjölda farþega á skipunum.

 

Fjölbreytt og skemmtilegt starf

Dóra Björk var ráðin í starf hafnarstjóra í mars á síðasta ári og hefur því nú sinnt því í rúmt ár. Það lá því beinast við að spyrja hana að lokum hvernig starfið legðist í hana. „Þetta er mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf. Margar áskoranir sem hefur verið gaman að takast á við. Hér er starfssemi alla daga ársins allan sólarhringinn þannig að það eru töluverð umsvif í þessu starfi,“ sagði Dóra Björk.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search