Föstudagur 1. desember 2023
Tói Vídó

1150 milljóna kr. innspýting í menningu, íþróttir og rannsóknir

21.03.2020

Mennta- og menningarmálaráðuneyti mun verja viðbótar 750 milljónum kr. í menningarverkefni og stuðning við starfsemi íþróttafélaga á næstu vikum, til að sporna við efnahagsáhrifum COVID-19 faraldursins.

Þá verður 400 milljónum kr. varið í rannsóknartengd verkefni.

Alls er því um ræða 1.150 milljónir kr., sem koma til viðbótar við fjárveitingar í fjárlögum ársins 2020.

„Það er mikilvægt að þessir fjármunir komist í umferð sem allra fyrst, svo afkoma fólks og félaga sem starfa á þessum sviðum verði betur tryggð. Við ætlum skapa störf fyrir fólk sem hefur orðið fyrir miklu tekjutapi vegna aðstæðna, og í leiðinni menningarverðmæti og þekkingu sem nýtist inn í framtíðina,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

„Þetta er veruleg innspýting í þessa mikilvægu starfsemi og aðgerðirnar eru umfangsmeiri en stjórnvöld í Noregi og Svíþjóð hafa gripið til af sama tilefni. Þetta er stór áfangi í þeirri baráttu að koma samfélaginu aftur á réttan kjöl, eftir skaðann sem COVID-19 hefur valdið. Við munum gera það sem þarf.“

Greint er frá þessu á vef stjóranarráðsins – Forsíðumynd: Tói Vídó

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is