20.09.2020
113 COVID-19 smit hafa greinst hér á landi á síðustu tveimur dögum. 38 smit greindust í gær og 75 smit greindust í fyrradag.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir var gestur í Sprengisandi á Bylgjunni í dag og sagði þar að hann telji ekki tilefni til hertari aðgerða að svo stöddu. Ástæðan fyrir því er sú að mun færri greindust í gær en í fyrradag. Hann vill frekar halda áfram með það sem við lagt var upp með og byrjað á í gær og sjá síðan til.
Víðir í sóttkví eftir viðtal
Rúv.is greinir frá því að starfsmaður Rásar 2 greindist með Covid 19 í gærkvöld. Unnið er að smitrakningu en fyrir liggur að sex starfsmenn þaðan eru komnir í sóttkví, auk einhverra viðmælenda. Þar á meðal er Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn er meðal þeirra viðmælenda sem þurfa að fara í sóttkví. Víðir fékk símtal frá smitrakningarteyminu í gærkvöld um að einstaklingur sem hann hafi verið í samskiptum við hafi greinst í gær.
„Tíminn sem ég dvaldi með þessum einstaklingi var það langur að hann sé innan þeirra marka að ég fari í sóttkví. Þarna var gætt samt allra almennra sóttvarnaráðstafana og fjarlægðin var meiri en tveir metrar á milli okkar allan tímann. Út frá mati sem smitrakningarteymið gerir í hvert skipti þá telst ég hafa verið innan þessara marka og er þar af leiðandi kominn í sóttkví,” sagði Víðir í hádegisfréttum Rúv.