Miðvikudagur 7. júní 2023

11% Vestmannaeyinga eru í sóttkví

23.03.2020 kl 14:42

Það eru tvímælalaust góðar fréttir að af öllum þeim tugum barna sem voru skimuð úr 1.-4. Bekk GRV var ekkert þeirra með kórónaveiruna. Ekkert sýni greindist heldur jákvætt hjá öllum þeim fjölmörgu sem sýni voru tekin hjá í 7. Bekk. Börnin virðast ekki vera mikið útsett fyrir smiti eða vera að dreifa smiti og það eru gríðarlega góðar fréttir fyrir okkur öll. Tvö börn hafa þó greinst með veiruna hér annað 2ja ára og hitt 15 ára en þau eru ekki mikið lasin. Sá elsti sem greinst hefur hér er 77 ára.

Að undirlægi Hjartar Kristjánssonar, umdæmislæknis sóttvarna á Suðurlandi, sem stendur heldur betur í ströngu þessa dagana og hans frábæra starfsfólk á HSU, hafa verið tekin flest sýni á landinu miðað við íbúafjölda. Farnar hafa verið ýmsar leiðir í því að beita forvirkum aðferðum, skima ákveðna hópa og herða á sóttkví og einangrun. Við vonum svo sannarlega að þessar aðferðir skili árangri en að öllum líkindum eigum við enn eftir að fá fleiri smit, sérstaklega í hópi nánustu aðstandenda smitaðra.

Bent er á nýja möguleika á síðunni heilsuvera.is, nú geta allir sem eru í sóttkví eða einangrun heima:
1. Sótt um vottorð vegna COVID-19
2. Skráð tilkynningu um sóttkví í Heilsuveru (þetta á f.o.f. við þá sem eru að koma erlendis frá og eiga að vera í sóttkví af þeim sökum).

Það eru um 11% Vestmannaeyinga í sóttkví og það tekur í hjá öllum stéttum. Stöndum saman og aðstoðum hvert annað, gætum að sóttvörnum, virðum fjarlægðarmörk en spörum ekki brosið.

Páley Borgþórsdóttir, aðgerðastjóri og lögreglustjóri í Vestmannaeyjum.

Greint er frá þessu á facebooksíðu lögreglunnar í Vestmannaeyujum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is